Nordic Civ
Norræna félagið er meðlimur í samstarfsneti Norrænu ráðherranefndarinnar, Nordic Civ.
Nordic Civ er norrænt samstarfsnet boragarlegra samtaka. Hlutverk samstarfsnetsins er að hafa áhrif á starf Norrænu ráðherranefndarinnar varðandi Framtíðarsýn okkar 2030. Vinna samstarfsnetsins hófst í september 2021 og er stjórnað af Global Utmaning, óháð hugveita í Svíþjóð sem vinnur að sjálfbærri þróun með félagsleg, efnahagsleg og umhverfisleg sjónarmið í huga.
“Markmið okkar er að samstarfsnetið verði að óháðum samtökum norrænna stofnana og samtaka sem ígrunda og veita vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar aðhald og innblástur.”
Tobias Grut / norden.org
“Það er mikilvægt að rödd borgaralega samfélagsins heyrist og að það taki virkan þátt, og að stjórnmálamenn leyfi hugmyndum þess að hafa áhrif á ákvarðanir sem eru teknar í norrænu samstarfi”